Gleymska Jóns í Billjóna Bónus

Í yfirlýsingu Jóns Ásgeirs vegna umfjöllunar norska sjónvarpsins (NRK) um hann segir: "Þau fyrirtæki sem ég og fjölskylda mín eigum í, ásamt hundruðum annarra hluthafa, það er að segja Baugur, Stoðir og Landic Property, eru þrjú af stærstu fyrirtækjum á Íslandi og þau skulda, samkvæmt yfirliti endurskoðanda fyrir árið 2008, 900 milljarða króna alls"

Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði á fundi Viðskiptaráðs á dögunum, að einn maður hefði fengið eitt þúsund milljarða, eða eina billjón króna, að láni hjá viðskiptabönkunum þremur, en Jón í Billjóna Bónus telur hann ekki eiga við sig.

Fyrir nokkrum dögum var frétt á lofti um það, að Jón Ásgeir ætti eftir að segja sig úr stjórnum 13 fyrirtækja vegna dóms sem hann fékk á sig.  Hann brást hinn versti við og sagði að ekki hefði komið fram að hann væri búinn að segja sig úr stjórnum 17 fyrirtækja.  Samkvæmt þessu hefur hann verið í stjórnum 30 fyrirtækja þegar hann var dæmdur brotlegur.  Nú segist Jón bara eiga í þremur fyrirtækjum.  Er ekki Jón í Billjóna Bónus orðinn ansi gleyminn?


mbl.is Efast um að Davíð eigi við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband